19.maķ.2011
Ekki bíða allavegana með öndina í hálsinum eftir nýju og fersku bloggi frá mér..Minni bara á nino.is síðuna hjá dóttur minni
Kossar og knús..
1 athugasemd

Ekki bíða allavegana með öndina í hálsinum eftir nýju og fersku bloggi frá mér..
Kossar og knús..
Við erum loksins búin að koma öllu fyrir, setja öll Ikea húsgögnin saman (nema eina skúffu sem kom gölluð og ég bíð enn spennt eftir að þeir sendi okkur nýtt þannig stykki eftir að hafa sent okkur það einu sinni vitlaust ) og hengja upp alls konar hluti sem gerir íbúðina svakalega huggulega..
En það er gott að vera nægjusamur enda þegar maður þekkjir ekki lúxusinn þá er erfitt að vita að hann er betri..
Eina svona sem ég sakna úr hinni íbúðinni er helst stór ískápurinn og frystihólfin en ég fer þá bara oftar í búð og reyndar vantar svona lágvöruverslun í nágrennið en maður neyðist þá bara til í að versla í lúxusbúðunum eða hjóla aðeins lengra..
Íslenska fiskbúðin er nefnilega ekkert svo langt frá.. Ég notaði líka ferðina og keypti eina appelsín og rjómasúkkulaði mmm..
Þetta verður reyndar frumraun mín í bollubakstri en ég hlít að redda því enda er ég að elska ofninn hérna og ætti hann að klára þetta verkefni fullkomnlega vel..
síðan ætla ég að setja inn myndir af íbúðinni ykkur til yndisauka..
Ég hef verið nokkuð upptekin að undanförnu og hef því ekki nennt að skrifa neitt hérna inn
en þar sem ég vaknaði fyrir allar aldir og unnustinn stein sefur þá er alveg upplagt að skrifa nokkur orð..
Síðan síðast hefur ansi margt gerst
Andri skellti sér í vikuferð til Möltu og hafði það mjög gott þar að sjálfsögðu.. Á meðan fékk ég góða gesti, þær Tinnu og Þórörnu og brölluðum við margt skemmtilegt saman..
Ég sótti síðan lyklana af stúdentagarðaíbúðinni 15.febrúar og fluttum við hingað inn í gær.. Flutningsdagurinn gekk vel þó svo það hafi verið afar lítil hjálp í mér en við fengum gott fólk til að hjálpa okkur með þetta allt saman og var allt dótið okkar komið hingað á Hóruhúsveginn um eitt leytið.. Þá drifum við okkur í Ikea og keyptum næstum því alla búðina.. Vorum samt að gera gríðarlega góð kaup því að einhverra hluta vegna voru allir skápar og kommóður sem að við vorum að kaupa á afslætti akkurat yfir þessa helgi þannig að lukkan var með okkur í þetta sinn 
Við síðan kláruðum að þrífa Rentemestervej í gærkvöldi og erum síðan að fara að skila lyklunum á eftir og ætli það sé ekki þess vegna sem daman er vöknuð fyrir allar aldir.. Finnst samt mjög undarlegt að vera að fara þangað í síðassta sinn á eftir enda erum við búin að búa þar í 2 ár og hefur líkað mjög vel fyrir utan þá kannski alla stigana og pínulitla baðherbergið en það var þó eitthvað sem alveg mátt lifa með..
Það verður mjög ljúft þegar við verðum búin að koma okkur almennilega fyrir hérna og vonandi náum við að gera flest allt í vikunni.. Þá vonandi fer íbúðin að vera "heima" þó að það geti að sjálfsögðu tekið einhvern tíma
En jæja best að fara að vekja Andra og hafa sig til
Heilsan er orðin mjög góð en var um smá flesu að ræða og var ég heima við í 3 daga í síðustu viku að ná því úr mér.. Ég er orðin fín núna en enn með smá kvef..
Í dag er 15.desember sem þýðir að aðeins eru 9 dagar til jóla
2 dagar í að við fljúgum til Íslands og 3 dagar í að við komum heim í héraðir fagra.. Það er reyndar búið að seinka fluginu okkar um einn og hálfan tíma sem að er svekkjandi því að við lendum þá ekki í Keflavík fyrr en hálf 12 um kvöldið.. Síðan er spáð vondu veðri og snjókomu en ég hef fulla trú á því að það reddist allt saman eins og yfirleitt en ef ekki þá finnum við nú bara lausn á því..
Það verður æði að koma heim og slappa af og dunda við jólaundirbúninginn
Mamma er nú auðvitað búin að flestu þannig að lítið verður um stress fyrir jólin hugsa ég..
Ég er síðan umvafin karlmönnum þessa dagana því að Óttar er í heimsókn hjá okkur og 2 vinir hans
Þannig að það er nóg að gera á stór heimili.. Þeir fara síðan á morgun aftur heim..
Að gefnu tilefni langar mér að koma með smá beiðni til vina og kunningja og vona ég að þið virðið það.. Ég hef lent mikið í því núna fyrir jólin að fá beiðnir um það frá hinum og þessum um að hvort að ég geti ekki skroppið hingað og þangað og keypt eitt og annað og komið með heim fyrir viðkomandi.. Mér þætti rosalega vænt um það að þið mynduð sleppa því að biðja mig um þetta !
Ég á erfitt með að segja nei og finnst mjög erfitt að þurfa að vera gleðispillir og neita að gera þessa greiða.. En málið er einfaldlega það að ég er alls ekkert alltaf í búðum þó svo að ég búi í DK og fer sárasjaldan orðið niður í bæ að versla.. Því er það alls ekkert í leiðinni fyrir mig að skjótast í næstu HogM búð sem er almennilega stór.. Síðan vil ég benda fólki á það að það má einungis taka 20 kg með sér í farangur milli landa og það er ansi fljótt að safnast saman þegar ég er með 10 kg af fötum fyrir hina og þessa ! Mér þætti mjög vænt um að fá að taka mitt eigið dót með mér þegar ég ferðast og neyðast ekki til þess að sleppa því að taka auka skó og föt með af því að ég hef ekki pláss..
Ég vil því benda á að það eru margir sem gera út fyrir þessa hluti á facebook og væri ekki vitlaust fyrir ykkur að skoða það því að ég er alls ekki ein af þeim sem að stend í því bulli..
Ég vona að þetta hljómi ekki alltof asnalega en ég varð bara að koma þessu á framfæri því að ég nenni ekki að svara fleiri mailum um hvort að ég eigi ekki eftir að kíkja í HogM fyrir jólin og geti ekki gripið þetta og hitt með í leiðinni..
Annars er ég að vona að piltarnir fari að skila sér heim svo að við getum farið að elda
Lofa ekki bloggi yfir jólin en vona að þið eigið frábær jól því að ég hugsa að mín verði það..
Það er enn snjór hérna hjá okkur og jólalögin spiluð alveg grimmt á heimilinu.. Fengum líka ofnin í stofunni loksins til þess að virka þannig að núna er heitt og notalegt hérna hjá okkur..

Og þessi maður vill endilega fá okkur út á Amager og talar ekki um neitt annað en að kíkja á skólagarðana þar, þannig að við urðum að láta undan svo við lendum ekki í því að búa i pakkakassa í mars..
Því að þá vantar okkur hugsa ég alla hjálp sem við mögulega getum fengið til þess að flytja ef að við verðum komin með einhverja íbúð þá.. En ef að engin íbúð verður komin þá, þá vantar okkur starfsmenn í garðsölu sem verður haldin hérna í garðinum okkar með öllu dótinu okkar haha..
Njótið aðventunnar..